FH drengir

30.12.2008 15:24:41 / fh_4fl

Norden Cup 2008

Komið sæl.

Síðasti og 6. leikur mótsins um 13. sætið var spilaður kl.11 í morgun á móti Sænsku liði Norrkopings HK. Því miður tapaðist þessi leikur 32-26. Bæði Ísak og Maggi spiluðu lítið í fyrri hálfleik og kom það töluvert niður á markaskorunni í þeim hálfleik þar sem þeir hafa verið nokkuð drúgir í markaskorunni, staðan var 15-7 í hálfleik. Strákarnir réttu aðeins úr kútnum og minnkuðu muninn niður í 3 mörk á tímabili, en þá var lítið eftir og þeir reyndu að fara maður á mann sem kom allt fyrir ekki, leikurinn tapaðist með fyrr greindum úrslitum, 14. og þriðja neðsta sætið var staðreynd, eitthvað sem menn bjuggust ekki við fyrir mót. Þó svo að liðið hafi fengið á sig 32 mörk, þá fór Siggi í markinu á kostum og tók 26 bolta í leiknum.Magnús var með 5 mörk, Þórir 5, Almar 5, Ísak 4, Gunnar 3, Aron 2, Steini 1 og Nonni 1. Þetta er búinn að vera skemtileg ferð og frábær reynsla sem á vonandi eftir að skila sér fyrir strákana, þó það hefði verið meira gaman að komast lengra. Nú eru strákarnir að versla og síðan förum við á Hard Rock í kvöld.

Guffi og Maggi þakka fyrir sig.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 20:08:51 / fh_4fl

Norden Cup

Komið sæl.

Fyrri leikurinn í dag á móti Norska liðinu Oppala tapaðist með einu marki 22-21. Það var greinilegt vanmat hjá okkar drengjum og komust seint í takt við leikinn, lentu 6 mörkum undir, strákarnir komu til baka  og var mjög tæpt að við náðum að jafna og ná framlengingu. Ísak var með 6 mörk, Magnús 4, Gauti 3,Steini 3, Gunnar 2, Nonni 1, Aron 1, Kiddi 1 og Siggi varði 15 bolta.Eftir þessi úrslit lentum við a móti liði sem við mættum á Partille í sumar og gerðum jafntefli við, ( Baltishoff ), strákarnir urðu að vinna þá til að eiga möguleika að spila um 13. sætið. Strákarnir tóku sig heldur betur saman í andlitinu og rúlluðu yfir andstæðinga sína með 11 mörkum , 35-24. Magnús  var með 11 mörk, Gunnar 6, Þórir 6, Ísak 4, Almar 4, Gauti 2, Andri 1 og Siggi varði 19 bolta. Liðið sem við töpuðum fyrir í gær með 1 marki lenti á léttum andstæðingum í báðum leikjum í dag og er komið í úrslitaleikinn á móta Partille meisturunum HK Varberg, svo ekki mátti muna miklu svo við hefðum getað verið í þeirri stöðu í dag. Það vor 2 riðlar mjög sterkir, þessi sem við vorum í og annar til , hinir frekar léttir. Við eigum leikinn á morgun kl.11, svo það verður farið að sofa snemma og vaknað snemma, sendum línu á morgun eftir leik.
Fórum á Ítalskan veitingastað og fengum okkur Spaghetti og Lasagne, allir alsælir.

Kveðja Guffi og Maggi.



» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 22:00:49 / fh_4fl

Norden Cup

Komið sæl.

Það skemst frá því að segja að við töpuðum 30-31, eftir jafnan og hörku spennandi leik.Staðan í hálfleik var 13-15, andstæðingarnir komust í 13-17, og við síðan jöfnuðum og komust yfir eftir griðalega baráttu 22-21, strákarnir allir sem einn eiga hrós skilið fyrir frábæran leik. Ísak var með 9 mörk, Magnús 7, Almar 5, Þórir 5, Gunnar 2, Gauti 1, Aron 1 og Siggi varði 14 bolta, hinum dugði jafntefli til að ná öðru sætinu í riðlinum, svo við urðum að vinna. Strákarnir voru fljótir að jafna sig á þessu en við Guffi þurftum aðeins lengri tíma, enduðum kvöldið á hinum heimsfræga Skoska stað McDonalds með ís og öllu eftir frábæran dag. Við eigum leik kl.13. á morgun á móti Norsku liði sem heitir Oppsal Handball. Þetta lið tapaði illa öllum sínum leikjum svo við vonumst eftir sigri , en erum samt við öllu búnir. Það var spilað með bolta nr.3 og hann var tekinn á eftir til eignar.
Fyrir þær mæður sem hafa áhyggjur að  því að drengirnir þeirra nái sér í kvonfang að erlendu bergi brotnu , þá hafa líkurnar á því aukist verulega, því nærliggjandi herbergi eru full af Norskum stúlkum svo við Guffi sofum lítið til að passa upp á að allt fari hér með sóma.

Hafið ekki áhyggjur, það er gott að búa í Noregi.

Kveðja Guffi og Maggi.

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 15:21:09 / fh_4fl

Norden Cup 2008

Komið sæl.

Það var eitthvað annað að sjá til strákanna í dag enn í gær, allir sem einn unnu saman að því að vinna leikinn, lokatölur voru 36-28 . Vörnin gríðalega góð og markvarslan líka. Magnús 9 mörk, Almar 5, Gunnar 5, Gauti 4, Ísak 4, Nonni 4, Aron, 3 Steini 2 og Siggi varði 17 bolta. Frá fyrstu mínútu börðust strákarnir og unnu samhenntir að sigrinum, eins og markaskorunin sýnir , nokkuð jöfn. Eitt sem plagaði liðið í gær að þurfa spila með bolta nr. 2 ( minni bolti, kvenna ) þegar þeir eru vanir að spila með nr. 3. Aron leysti þetta mál þar sem hann mætti með sinn bolta og setti á hann á miðjuna fyrir leik, Svíjarnir gerðu athugasemd við þetta , en Aron benti á að þeir væru þá með svona litlar hendur ,sem þeir vildu ekki viðurkenna og spilað var með bolta nr.3.  Strákarnir eru allir sem einn til fyrmyndar og haga sér vel í ferðinni, bæði innan sem utan vallar. Erum á hótelinu núna að gera sig klára fyri leikinn sem byrjar eftir tæpa 3 tíma, liðið sem við mætum tapaði fyrir liðinu sem við töpuðum fyrir í gær með 4 mörkum 29-33, svo þetta verður hörku leikur á eftir og ræðst hvort við komumst í 8 liða úrslit eða ekki.

Setjum inn uplýsingar með leikinn á eftir.

Kveðja Guffi og Maggi.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 21:08:54 / fh_4fl

Norden cup

Sæl ég set inn hérna póstinn sem Maggi og Guffi sendu.
kv,Ásta


Komid sael.
Tha er fyrsta leik lidsins lokid og tapadist hann 38-27 stadan I halfleik var 22-11, okkar drengir voru seinir I gang og attudu  of seint a hradspilandi Svium meira en helmingur marka Svija komu ur hradaupphlaupum. Isak var med 11 mork, Maggi 8, Thorir 2, Aron 2,Gauti 1,Almar 1, Gunnar 1 og Steini 1 , Siggi vardi 15 skot. Thad vard spennufall hja lidinu ad fa loksins ad spila eftir 14 tima erfitt ferdalag I gaer , thegar saensku lidin thurfa ad ferdast ekki nema halftima hingad. Strakarnir urdu mjog svektir eftir skellinnn en eru nuna I gufu a hotelinu eins og greifar og eru tilbunir fyrir verkefni morgundagsins. Fyrri leikurinn er kl.13 og seinni 19, vid horfdum a leikinn med motherjum morgundagsins I dag og eru thau mjog sterk eins og lidid sem vid spiludum vid I dag, sendi linu a morgun og verd vonandi komid med adgang ad heimasidu FH.
Kv.Guffi og Maggi.




» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 09:15:31 / fh_4fl

Úr leik.

Það kom að því að hlutirnir féllu ekki með okkur í dag. Eldri strákarnir duttu úr leik í 8-liða úrslitum eftir leik á móti sænsku liði. Leikurinn endaði í jafntefli og enn og aftur töpuðum við í bráðabana.

Strákarnir stóðu sig samt eins og hetjur og töpuðu aðeins þessum eina leik í öllu mótinu sem er glæsilegur árangur. Bráðabani er ekki besti vinur FH.;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 18:21:46 / fh_4fl

Sigur og tap.

Eldri strákarnir unnu líka seinni leikinn sinn í dag 16-13. Þeir spiluðu ekki við franska liðið eins og við héldum heldur voru fórnarlömbin frá Svíþjóð og heitir liðið Halmstad. Þetta voru líka 16 liða úrslit en ekki 8 liða.


Staðan er ss. þannig að strákarnir eiga leik klukkan 09:20 í fyrramálið á móti enn einu sænska liðinu, Bollebygds AFF og nú í 8-liða úrslitum. Þeir eru alls ekki búnir að fá nóg af því að slátra Svíum og ætla sér klárlega sigur í þessum leik og tryggja sér sæti í undanúrslitum! KA er einnig komið í 8-liða úrslit og eru þá tvö íslensk lið í 8-liða úrslitum sem má teljast feikna góður árangur frá litlu eyjunni!

Yngri strákarnir unnu fyrri leikinn sinn í dag á móti Union West Wien frá Austurríki  mjög örugglega  15-4. Gjörsamlega völtuðu yfir liðið og höfðu feikilega gaman af því!
Þeir spiluðu svo hörkuleik við sænska liðið IK Baltichov í 16-liða úrslitum og eftir mikinn baráttuleik endaði leikurinn í jafntefli. Eftir bráðabana höfðu Svíarnir svo sigur á gullmarki sem þýðir að strákarnir okkar eru úr leik í þetta skiptið. Tæpara gat það ekki verið!
Þeir geta samt verið mjög stoltir af sinni frammistöðu í þessu móti. Þeir hafa staðið sig gríðarlega vel og töpuðu aðeins tveimur leikjum í mótinu og þ.m. einum á gullmarki í bráðabana.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 11:45:57 / fh_4fl

Enn Ósigraðir!!

Eldri strákarnir eru enþá ósigraðir og eru komnir í 8 liða úrslit eftir að hafa unnið annan leikinn sinn í dag á móti Kristianstad HB 13-16.

Strákarnir spiluðu mjög vel í steikjandi hitanum og voru yfir allan tímann. Þeir spila svo í 8-liða úrslitunum kl: 17:15 á sænskum tíma í dag á móti franska liðinu US Ivry handball. Þeir eru eins og við ósigraðir í mótinu til þessa en verða að vonandi ekki mikið lengur :klikk: Þess má til gamans geta að Ragnar Óskarsson landsliðsmaður í handbolta spilaði með US Ivry fyrir nokkrum árum.

Yngra liðið á svo sinn fyrsta leik í dag kl:16:05.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 08:27:55 / fh_4fl

Sigur

Eldri strákarnir unnu núna rétt áðan sænska liðið Savehof2 í hörkuleik 12-11. Við vorum tveimur mörkum undir í hálfleik en með mikillri baráttu náðum við að sigla sigri í hús!

Strákarnir eru enþá ósigraðir í mótinu eftir að hafa spilað á móti mjög sterkum liðum og voru í sannkölluðum dauðariðli. Næsti leikur er á móti Kristianstad HB frá Svíþjóð. Það lið vann sinn riðill nokkuð örugglega og má búast við mjög erfiðum leik!

Leikurinn er kl: 12:35 á sænskum tíma.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 13:21:37 / fh_4fl

A-Úrslit

Jæja..

Yngri strákarnir héldu sigurgöngu sinni áfram í dag og unnu sinn leik nokkuð örugglega þegar þeir unnu Karra HF2 frá Svíþjóð 15-20. Þeir unnu þá sinn riðil og spila  fyrsta leikinn sinn í milliriðli klukkan 16:00 á morgun laugardag.

Eldra liðið vann fyrri leikinn sinn í dag á móti Tyrkneska liðinu TED Ankara Kolejliler mjög örugglega 16-6. Seinni leikurinn var á móti sterku sænsku liði sem heitir IK Baltichov og gerðu þeir jafntefli 11-11 eftir hörkuleik. Þeir urðu í 2. sæti í riðlinum á minnsta mögulega mun þar sem þrjú efstu liðin voru öll með 7 stig. Hastö IF frá Svíþjóð voru með fleiri skoruð mörk og sigruðu þar með riðilinn.  Strákarnir eiga sinn fyrsta leik í milliriðli snemma í fyrramálið kl: 08:30 á sænskum tíma.


Þess má geta að strákarnir eru að spila alla sína leiki á gervigrasi í steikjandi hita og glampandi sól, sem eru aðstæður sem við þekkjum alls ekki heima á Íslandi. Þeir eru búnir að standa sig frábærlega, bæði liðin komin í A-úrslit og eru strákarnir staðráðnir í að halda áfram að sýna að FH er best í heimi! :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 21:35:57 / fh_4fl

Dagur 2.

Strákarnir halda áfram að standa sig vel hér í Svíþjóð. Yngri strákarnir unnu báða sína leiki í dag og eru efstir í sínum riðli. Þeir rúlluðu yfir RK-Vranje frá Serbíu 4-12 og unnu svo þýska liðið  HSG Geestemünde1 18-11. Glæsilegt hjá þeim. Á morgun spila þeir svo við sænska liðið KarraHF2 klukkan 13:45 á sænskum tíma.
Eldri strákarnir gerðu jafntefli í báðum sínum leikjum í dag. Fyrst 12-12 á móti Hastö IF frá Svíþjóð og svo 13-13 á móti BM Granollers frá Spáni. Bæði þessi lið eru sterk en okkar strákar eiga meira inni og ætla að klára sína leiki með stæl á morgun. Þeir spila fyrst við lið með mjög svo skemmtilegu nafni, TED Ankara Kolejliler frá Tyrklandi klukkan 09:40 á sænskum tíma og IK Baltichof frá  Svíþjóð klukkan 12:00.

Á morgun kemur svo í ljós hvenær liðin spila í milliriðlunum. Annars er eintóm sól og brakandi blíða hér í Gautarborg og strákarnir allir sérlega hressir :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 14:31:06 / fh_4fl

Smá frá Gautaborg

þetta virðist ganga ágætlega hjá strákunum á Partille.
Yngra árið er búið að spila 3 leiki, vinna 2 og tapa 1.  Unnu stórsigur í morgun. Unnu RK Vranje 12-4 og löguðu heldur betur markatöluna hjá sér.  Sitja nú í 2 sæti í riðlinum sem fastast.  Lítur vel út hjá þeim. mæta  HSG Geestemünde 1  kl 16:15 í dag.

Eldra árið er í 2 sæti í sínum riðli eftir 1 leik og mæta liðinu í efsta sæti
sem er Hästö IF 1, kl 14:30 að íslenskum tíma í dag.  og kl 17.25 í dag mæta þeir Granollers frá Spánni, sem alltaf eru með góð lið á Partille. Verður það eflaust erfiður leikur.

hægt er að skoða riðlana hjá strákunum í pistli hér á undan

Gangi ykkur vel í dag piltar

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 08:57:13 / fh_4fl

Riðlar strákanna.....

Yngra árið byrjaði með stæl í dag of unnu Anderstorp með 10 mörkum 20-10. Mjög sannfærandi sigur virðist þetta hafa verið.  Kannski munu strákarnir eða fararstjórar henda inn nánari uppl um leiki dagsins síðar í kvöld.
Hægt er að skoða riðlana hjá strákunum hér fyrir neðan
yngra ár:  http://www.partillecup.com/results/program.asp?selCategory=B15&selGroup=1545  

eldra ár  http://www.partillecup.com/results/program.asp?selCategory=B16&selGroup=1561 

SR

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 18:24:01 / fh_4fl

ATH ATH ATH ATH..............

Það virðist vera einhvert vesen með að virkja sænska númerið hjá strákunum í Svíþjóð.
þeir ætla að kíkja í símabúðina á morgun og ath hvort þeir geti hjálpað sér.
Sverrir sagði Ása bara að nota allan þann  sænska orðaforða sem hann lærði í fyrra hjá sér.  En Ási sagðist bara kunna  "ja,ja,ja " og  það hljóma ekki mjög vitsmunalegt. :$:$:$

En Ási bað mig um að setja númerið sitt hér í staðinn og hægt er að hringja í það ef mikið liggur við.  það er  824-5317

SR

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 15:01:14 / fh_4fl

Símanúmer í Svíþjóð

07 30 - 211281

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 36434
Könnun
Ætlar þú að mæta á bikarúrslitin á sunnudag?
Já að styðja strákana
10 atkvæði

Er að spila!
3 atkvæði

Ekki séns...!!!
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 14
RSS tengill
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Brottför á Partille Cup
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1332 dögum
Brottför á Partille
Handboltamenn
Ýmsir slóðir
Keppinautar